Samþykktir Landssambands kúabænda
1. gr.
Félög nautgripabænda á Íslandi mynda með sér samtök sem heita Landssamband kúabænda (skammst. LK). Heimili og varnarþing LK er á skrifstofu samtakanna.
2. gr.
Tilgangur LK er að sameina þá, sem stunda nautgriparækt í atvinnuskyni, um hagsmunamál sín og vinna að framgangi þeirra. Einnig að annast kynningar- og fræðslustarf um málefni búgreinarinnar og afla þeim stuðnings.
3. gr.
3.1. Rétt til aðildar að LK hafa öll svæðisbundin félög nautgripabænda á landinu, enda fari samþykktir þeirra ekki í bága við samþykktir LK. Aðildarfélög LK skulu vera sjálfstæð. Þau skulu setja sér samþykktir og halda félagatal.
Aðildarfélög LK eru eftirtalin:
Mjólkursamlag Kjalarnesþings
Kúabændafélagið Baula á Vesturlandi
Félag nautgripabænda við Breiðafjörð
Félag kúabænda í Ísafjarðarsýslum
Nautgriparæktarfélag Vestur Húnavatnssýslu
Félag kúabænda í Austur-Húnavatnssýslu
Félag kúabænda í Skagafirði
Félag eyfirskra kúabænda
Félag þingeyskra kúabænda
Félag nautgripabænda á Héraði og Fjörðum
Nautgriparæktarfélag Vopnafjarðar
Nautgriparæktarfélag Austur-Skaftfellinga
Félag kúabænda á Suðurlandi
3.2. Nautgripabóndi telst hver sá sem stendur að framleiðslu mjólkur eða nautgripakjöts og leggur í afurðastöð.
3.3. Sæki tvö félög um aðild, sem hafa að einhverju eða öllu leyti sama félagssvæði, skal stjórn LK leitast við að ná samkomulagi um málið. Takist það ekki skal stjórnin leggja fram tillögu fyrir aðalfund LK hversu með skuli fara og er afgreiðsla hans fullnaðarúrskurður í málinu.
3.4. LK ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með eignum sínum, en hvorki aðildarfélögin né einstakir félagsmenn.
4. gr.
Aðild LK að öðrum félagasamtökum er háð samþykki aðalfundar.
5. gr.
5.1. Aðalfund skal halda árlega og hefur hann æðsta vald í öllum málefnum LK.
5.2. Aðalfund sitja með fullum réttindum fulltrúar aðildarfélaganna kosnir á aðalfundum þeirra í leynilegri kosningu. Sé starfrækt innan viðkomandi aðildarfélags trúnaðarmannaráð, sem kosið er á aðalfundi með framangreindum hætti og innifelur a.m.k. tvöfaldan þann fjölda fulltrúa sem félaginu ber, er aðalfundi þess heimilt að vísa fulltrúakjörinu þangað.
5.3. Fjöldi fulltrúa frá hverju félagi skal miðast við fjölda nautgripabænda á félagssvæðinu sem skrifaðir hafa verið fyrir innleggi mjólkur eða nautgripakjöts í afurðastöð árið fyrir aðalfund. Skal einn fulltrúi kosinn á aðalfund fyrir hverja byrjaða 27 nautgripabændur.
Lögaðilar svo sem einkahlutafélög, félagsbú eða sameignarfélög geta einnig talist nautgripabændur samkvæmt þessari grein.
Komi upp ágreiningur um fjölda nautgripabænda sem telja til fulltrúakjörs hjá hverju aðildarfélagi skal stjórn LK úrskurða um málið eftir að hafa aflað upplýsinga frá afurðastöðvum.
5.4. Stjórnarmenn og skoðunarmenn ásamt varamönnum þeirra hafa málfrelsi og tillögurétt á aðalfundi ásamt búnaðarþingsfulltrúum LK. Aðalfundurinn er opinn til áheyrnar öllum félagsmönnum aðildarfélaganna. Óski fleiri aðilar en hér er getið um, eftir að sitja aðalfund með málfrelsi og tillögurétt skal það borið undir fundinn.
5.5. Á dagskrá skal vera:
a) Skýrslur stjórnar og nefnda um félagsstarfið og umræður um þær.
b) Afgreiðsla reikninga fyrir næst liðið almanaksár.
c) Tillögur og erindi til umræðu og afgreiðslu.
d) Kosningar
I. Kjör formanns til eins árs.
II. Kjör fjögurra meðstjórnenda og 1. og. 2. varamanns til eins árs.
III. Kjör tveggja skoðunarmanna fyrir reikninga LK og eins til vara til eins árs.
IV. Kjör aðal- og varafulltrúa á Búnaðarþing til þriggja ára.
e) Fjárhagsáætlun til næsta árs.
f) Önnur mál.
5.6. Aðalfund skal boða fyrir 10. janúar ár hvert til stjórna aðildarfélaganna. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
6. gr.
Aukafund skal halda þyki stjórn LK sérstök nauðsyn bera til og jafnan þegar aðildarfélög, eitt eða fleiri, með samtals a.m.k ¼ félagatölu LK, óska þess, enda sé þá fundarefni tilgreint. Aukafund skal boða með minnst 7 daga fyrirvara. Um rétt til fundarsetu á aukafundum gilda sömu reglur og á aðalfundi.
7. gr.
7.1. Stjórn LK skipa fimm menn kosnir á aðalfundi leynilegri kosningu.
7.2. Fyrst skal kosinn formaður í beinni kosningu. Fái enginn meira en helming greiddra atkvæða skal kosið aftur bundinni kosningu milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu.
Síðan skal kjósa fjóra meðstjórnendur. Stjórnin skiptir með sér verkum varaformanns, ritara og meðstjórnenda svo fljótt sem kostur er.
7.3. Heimilt er að skipa nefnd á aðalfundi til undirbúnings stjórnarkjörs, en gætt skal jöfnuðar milli landshluta við skipan hennar.
8. gr.
8.1. Hlutverk stjórnar er að annast málefni félagsins milli félagsfunda og sjá um að þau séu jafnan í sem bestu horfi. Hún ræður starfsfólk og veitir prókúru fyrir félagið.
8.2. Undirskriftir þriggja stjórnarmanna þarf til að skuldbinda félagið.
9. gr.
9.1. Formaður boðar til stjórnarfunda þegar ástæða þykir til og stjórnar þeim. Þó er honum skylt að boða fund ef tveir stjórnarmenn óska þess, enda sé þá fundarefnið tilgreint. Stjórnarfundur er lögmætur sé meirihluti stjórnar á fundi.
9.2. Stjórn LK skal skrá fundargerðir á fundum sínum. Fundargerðir skulu birtar á vefsvæði LK svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en að loknum næsta stjórnarfundi. Stjórnarmenn skulu staðfesta afrit af fundargerðinni með undirskrift sinni og skal stjórn sjá til þess að þau afrit séu varðveitt með tryggilegum hætti.
10. gr.
Aðildarfélög LK skulu senda félagatal og aðrar nauðsynlegar upplýsingar um starfsemi viðkomandi félags til skrifstofu LK eftir því sem stjórn LK ákveður hverju sinni. Félagatal skulu aðildarfélög senda til skrifstofu LK eigi síðar en 31. desember ár hvert. LK sendir hverju félagi staðfesta tölu fulltrúa á aðalfund eigi síðar en 10. janúar ár hvert. Frá þeim tíma hafa félögin 7 daga til að gera athugasemdir við fulltrúatöluna. Komi upp álitamál skal stjórn Lk úrskurða um málið samkvæmt gr. 5.3. svo fljótt sem kostur er. Eins fljótt og við verður komið eftir aðalfund hvers aðildarfélags skal stjórn þess senda LK skýrslu um störf félagsins á liðnu ári, upplýsingar um kosningar í stjórn og fulltrúa á fundi LK og annað sem máli kann að skipta. Þessar upplýsingar skulu hafa borist skrifstofu LK eigi síðar en 20 dögum fyrir aðalfund. Mál sem taka á til afgreiðslu á aðalfundi LK, skulu hafa borist skrifstofu LK eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur getur þó ákveðið að taka til afgreiðslu mál sem koma síðar fram.
11. gr.
Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða aukafundi, sem boðaður er til þess sérstaklega. Tillögur þar um skulu kynntar stjórnum aðildarfélaganna eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Ná þær því aðeins fram að ganga að meirihluti kjörinna fulltrúa greiði þeim atkvæði.
12. gr.
Leggist starfsemi LK niður og félaginu er slitið skulu eigur þess ganga til aðildarfélaganna í hlutfalli við félagatölu.
13. gr.
Ákvæði samþykkta þessara gilda frá og með aðalfundi 2010.
Samþykkt á aðalfundi LK 2011