Landssamband kúabænda
Landssamband kúabænda (LK) er hagsmunagæslufélag nautgripabænda á Íslandi og hefur starfað síðan 1986. Í stórum dráttum má skipta verkefnum sambandsins í þrjá þætti: fagleg mál, félagsmál og markaðsmál.
LK var stofnað á tímamótum í íslenskum landbúnaði og fékk m.a. í vöggugjöf að þurfa að móta umdeilt framleiðslustjórnunarkerfi. Síðan þá hafa mörg og breytileg mál verið á verkefnalista sambandsins og er LK í dag í forsvari fyrir kúabændur landsins í öllum veigamiklum málum er lúta að nautgriparækt.
Að LK standa í dag 13 aðildarfélög, sem mynda Landssamband kúabænda eins og það er í dag.
Skristofa LK er í húsakynnum MS að Bitruhálsi 1 í Reykjavík, framkvæmdastjóri Baldur Helgi Benjamínsson.
Landssamband kúabænda
Bitruhálsi 1
IS-110 Reykjavík
ISLAND
Sími: 569 2237
Bréfsími: 569 2210
Kt. 511290-2019
Síðast breytt 4. maí 2011