15. september 2008 13:17
Framkvæmdastjóri LK í fæðingarorlofi
Þann 1. september sl. fór Baldur H. Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK í fæðingarorlof. Staðgengill hans í orlofinu er Þórólfur Sveinsson, formaður LK.
Tölvupóst til sambandsins verður áfram hægt að senda á lk@naut.is, sími á skrifstofu verður óbreyttur, 569 2237 og farsími verður 898 5805.

Stúlka Baldursdóttir, fædd 25. ágúst 2008, í fangi móður sinnar Elinar N. Grethardsdóttur