Landssamband Kúabænda
Dansk
English
Landssamband kúabænda
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Sími: 569 2237
GSM: 896 1995
Fax: 569 2210
lk@naut.is
www.naut.is
Kýrhausinn
23 febrúar 2012 - 00:10
Sæll Birkir og aðrir netverjar. Ekki finnst mér skynsamlegt að slaka á kr...
22 febrúar 2012 - 10:30
Já ljóst má vera að menn hafa haft nóg að gera við að finna up...
18 febrúar 2012 - 15:55
Ég er búinn að leggja inn mjólk í nokkra áratugi, á þeim t...
Þín skoðun
Hvert er viðhorf þitt til afraksturs af kynbótastarfi nautgriparæktarinnar?
Tilkynningar
8. maí 2009
Ferðasaga úr bændaferð til Nýja-Sjálands 2005

Ferðasögu úr bændaferð til Nýja-Sjálands 2005, sem tekin hefur verið saman af Sigurði Þórðarsyni má nálgast hér. Ath. að skjalið er 9 MB.

4. desember 2008
Frásögn af bændaferð til Brasilíu og Argentínu í febrúar-mars 2008 - Búið að bæta við myndum

Ríkulega myndskreytt frásögn Sigurðar Þórðarsonar er að finna hér (1. hluti, Bandaríkin og Brasilía) og hér (2. hluti, Argentína). Athugið að skjölin eru talsvert stór, 1. hluti er rúm 15 MB en 2. hluti er 6,7 MB. Bæði eru þau á PDF formi.

 

Undirritaður hefur bætt við nokkrum myndum úr ferðinni. Þær er að finna hér.

15. september 2008
Framkvæmdastjóri LK í fæðingarorlofi

Þann 1. september sl. fór Baldur H. Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK í fæðingarorlof. Staðgengill hans í orlofinu er Þórólfur Sveinsson, formaður LK.

9. janúar 2008
Aðalfundur Landssambands kúabænda, 4.-5. apríl 2008

Aðalfundur Landssambands kúabænda verður haldinn á Hótel Selfossi, föstudaginn 4. og laugardaginn 5. apríl n.k. Árshátíð LK verður haldin á sama stað að kvöldi 5. apríl. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

18. apríl 2007
Ný stjórn Landssambands kúabænda, 2007-2008

Á aðalfundinum á Akureyri á dögunum var kosin ný stjórn Landssambands kúabænda. Þórólfur Sveinsson á Ferjubakka 2 í Borgarfirði var kosinn formaður með 32 atkvæðum. Aðrir stjórnarmenn voru kosnir Sigurður Loftsson í Steinsholti, Skeiða- og Gnúpverjahreppi með 32 atkvæðum, Guðný Helga Björnsdóttir, Bessastöðum á Heggsstaðanesi með 32 atkvæðum, Jóhann Nikulásson, Stóru-Hildisey 2, Austur-Landeyjum með 28 atkvæðum og Sveinbjörn Þór Sigurðsson, Búvöllum í Aðaldal með 27 atkvæðum. Varamenn í stjórn voru kjörin Gunnar Jónsson, Egilsstöðum 5 á Héraði og Guðrún Lárusdóttir, Keldudal í Hegranesi.

31. október 2005
ER VINNUAÐSTAÐA FRJÓTÆKNISINS GÓÐ?

Hefur frjótæknirinn góða vinnuastöðu hjá þér?

 

 Já, af því að:
    ég er með sér stígvél fyrir frjótækninn til að tryggja góða smitgát
    ég er með sjóðandi heitt vatn til þess að þvo óhreina hluti með
    ég er með gott borð fyrir frjótækninn til að skrifa við
    ég er með góðan stað fyrir tösku frjótæknisins
    ég skrifa skýr skilaboð varðandi sæðingarnar til frjótæknis ef ég er ekki við
    ég merki allar kýr sem á að sæða með skýrum hætti
    ég býð ekki frjótækni upp á þá vinnuaðstöðu að sæða kýr sem standa í legubásum
    ég sé til þess að kýr sem eru í meðhöndlunarstíum séu vel festar þegar frjótæknir kemur

 

 Nei, greinilega ekki en ég ætla að laga þetta hjá mér strax!

 

Athugasemdir:
Nóg er að eiga fern pör af stígvelum (nr. 41, 43, 45 og 47) sem ýmsir aðkomuaðilar eiga þá að nota eingöngu (frjótæknar, ráðunautar, dýralæknar, eftirlitsaðilar ofl.).
 

21. mars 2005
VILTU AUGLÝSA Á VEFNUM?
Í boði eru þrír auglýsingagluggar á vef LK. Stærð þeirra er 231 (punktar/pixlar) á breidd og 60-80 á hæð og 130 á hæð.
 
Nánari upplýsingar fást með því að senda fyrirspurn til LK: lk@naut.is
14. september 2004
Kyngreint nautgripasæði

Komin er á vefinn grein um kyngreiningu nautgripasæðis. Í greininni er talað við kynbótafræðinga hjá dönskum nautgripafélögum, auk þess sem komið er inn á bæði kosti og galla þess að kyngreina sæði.