Kýrhausinn
Smelltu hér til að gerast áskrifandi að flokknum Kýrhausinn
Gæðakröfur |
23. febrúar 2012 00:10 |
Sæll Birkir og aðrir netverjar.
Ekki finnst mér skynsamlegt að slaka á kröfum um mjólkurgæði og reyndar alveg fráleitt að menn geti svona endrum og sinnum lagt inn lakari mjólk eins og Birkir leggur til. Það er og hefur verið markmið að framleiða hágæðavörur úr hágæðahráefni. MS greiðir árlega tugi milljóna í gæðaálag fyrir mjólk er uppfyllir meirri kröfur en opinberar reglur krefjast. Auk þess er rekið mjólkureftirlit til aðstoða bændur við að ná sem bestum árangri í sinni framleiðslu, en ekki til að "nappa" einn eða neinn.
Kv. Egill Sig. |
|