Gin og klaufaveiki, Salmonella, Garnaveiki, Smitandi júgurbólga eða Hringskyrfi.
Nei takk!
Smit getur borist....
Milli dýra
Með öllum gestum, t.d.
ü öðrum bændum
ü dýralæknum, sæðinga-
mönnum og ráðunautum
ü sláturhúsbílum
ü fóðurflutningum og
ü öðrum þjónustuaðilum
Með áhöldum og tækjum.
Með heimsóknum í önnur fjós, bæði hérlendis og erlendis
Með erlendum gestum
Verndaðu bú þitt og annarra:
ü Í gallann!
Allir gestir skulu klæðast hreinum utanyfirfötum, annaðhvort einnota eða fatnaði búsins. Stígvél eiga að vera hrein, líka
undir sólanum. Notið skóhlífar.
ü Nemið staðar við dyrnar!
Flutningabílstjórar eiga ekki að fara inn í fjós, bændur eiga heldur ekki að fara inn í bílinn. Munið að múlar og kaðlar geta borið með sér smit.
ü Heilbrigð dýr!
Kaupið aldrei dýr nema í samráði við dýralækni. Fáið skrifleg vottorð!
ü ü Hreint og ómengað fóður og vatn!
ü Hreint inn – hreint út!
Klaufskurðarbásar og önnur áhöld sem fara á milli bæja geta borið með sér smit. Þrífið og sótthreinsið tæki bæði fyrir
og eftir notkun!
ü Utanlandsferðir!
Aldrei ætti að líða skemmri tími en 48 klst. frá því að farið er úr erlendu fjósi þar til að farið er í fjós hér heima. Munið að þvo og sótthreinsa fatnað og skó þegar þið komið heim. Salmonella og hringskyrfi eru algengir sjúkdómar erlendis og smitið getur auðveldlega borist hingað heim heim.
ü ü Erlendir gestir og farandverkafólk!
Erlent farandverkafólk og gestir geta óafvitandi borið með sér ýmsa sjúkdóma.
ü Meindýravarnir!
Mýs og flugur eru öflugir smitberar. Hundar og kettir geta sömuleiðis borið með sér mikið smit.