Upplýsingavefur dönsku ráðunautaþjónustunnar
(Landscentret)
Landssamband kúabænda gerði í júní 2002 samkomulag við Landscentret (LR) um að allir íslenskir kúabændur gætu fengið ókeypis aðgengi að gagnagrunni dönsku samtakanna.
Benda má á að samkomulagið opnar einnig möguleika fyrir aðra bændur að fá aðgengi að gagnagrunninum og er á vefnum mikið af upplýsingum bæði fyrir svína-, alifugla-, sauðfjár- og hrossabændur.
Um vef LR (www.lr.dk)
Vefnum er skipt upp í fjóra kafla; Landscentret, Landbrugsinfo, DLBR IT og Produkter.
Í kaflanum um Landbrugets Rådgivningscenter er hægt að finna allar fréttir, upplýsingar um ráðgjafaþjónustuna, útgáfustarf ofl.
Í kaflanum um LandbrugsInfo eru helstu upplýsingar um landbúnað fyrir bændur og m.a. þar mikið magn af fagupplýsingum um nautgriparækt, byggingar, ræktun ofl.
Í kaflanum um DLBR IT er að finna upplýsingar um hugbúnaðarlausnir fyrir bændur.
Í kaflanum um Produkter eru svo upplýsingar um allt efni sem gefið er út af LR og er hægt að fá keypt.
Uppfært 16. janúar 2009