Landssamband Kúabænda
Dansk
English
Landssamband kúabænda
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Sími: 569 2237
GSM: 896 1995
Fax: 569 2210
lk@naut.is
www.naut.is
Kýrhausinn
10 maí 2012 - 12:47
Ágætu lesendur. Nafni minn Sigurður Óli á Lambastöðum ber fram nokkrar spurningar til mín og framkv...
09 maí 2012 - 11:25
Hr. Baldur Helgi og Sigurður Lofts, Nú nýverið lækkaði mjólkurv...
29 apríl 2012 - 14:20
Gamla Baula, sem hét Mjólkurbú Hafnarfjarðar ef ég man rétt, var keypt a...
Þín skoðun
Hversu mikið af túnum ætlar þú að endurrækta í ár?
Fréttir LK
26. janúar 2012

Arion banki veitir sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs

Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Upphæð sem nemur afslættinum verður lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka.

 
Að langstærstum hluta er um að ræða afslátt vegna íbúðalána. Nemur afslátturinn tveimur gjalddögum síðasta árs miðað við að 12 gjalddagar hafi verið greiddir, eða 16,7% af greiddum gjalddögum. Einnig er veittur 30% afsláttur af vaxtagreiðslum síðasta árs vegna yfirdráttarlána.

 
Frá því Arion banki var stofnaður hafa aðgerðir bankans fyrst og fremst beinst að þeim hópi viðskiptavina sem glímt hefur við mestan greiðslu- og skuldavanda. Því átaki fer að ljúka og þar með verða ákveðin kaflaskil í starfsemi bankans. Aðgerðin nú er annars eðlis og snertir alla skilvísa lánþega bankans. Hún kemur í kjölfar yfirtöku bankans á lánasafni þrotabús Kaupþings.

 
Að meðaltali nemur greiðsla vegna íbúðalána 125 þúsund krónum og greiðsla vegna yfirdráttalána 13 þúsund krónum. Samtals fá um 33 þúsund viðskiptavina bankans greitt til baka frá Arion banka föstudaginn 27. janúar.

 
Kostnaður vegna þessa er áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Þar með er kostnaður bankans vegna aðgerða er snúa að einstaklingum og heimilum orðinn rúmir 40 milljarðar króna sem er rúmum 5 milljörðum umfram það svigrúm bankans sem skapaðist við yfirtöku lánanna.

 
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við sem störfum hjá Arion banka höfum undanfarin ár eða frá stofnun bankans fyrst og fremst beint sjónum okkar að úrlausnarmálum viðskiptavina sem glímt hafa við hvað mestan fjárhagsvanda, ásamt því að byggja upp nýjan og traustan banka. Þar hefur umtalsverður árangur náðst. Nýverið tók svo bankinn yfir íbúðalánasafn sem verið hafði í eigu þrotabús Kaupþings og fékk þar með fullt forræði yfir lánasafninu. Hvort tveggja markar ákveðin kaflaskil. Því viljum við nota tækifærið og sýna skilvísum viðskiptavinum okkar þennan þakklætisvott fyrir samstarfið á undanförnum þremur árum.“ /SS - fréttatilkynning 

 

Senda á Facebook