26. janúar 2012
Hraunkot með glæsilegt Íslandsmet í afurðasemi
Ársuppgjör skýrsluhalds nautgriparæktarinnar hjá BÍ fyrir 2011 var birt í gær. Þar er helst tíðinda að meðalnyt árskúa á búi Ólafs og Sigurlaugar í Hraunkoti í Landbroti var 8.340 kg sem er glæsilegt Íslandsmet. Fyrra met var sett á búi Daníels Magnússonar í Akbraut í Holtum árið 2008, 8.159 kg mjólkur að jafnaði á árskúna. Nythæsta kýrin var Týra 120 í Hraunkoti en hún mjólkaði 12.144 kg á árinu 2011.
Aðrar niðurstöður eru þær helstar að í árslok 2011 voru 598 bú skráð í skýrsluhaldið, sem er fækkun um 9 frá árslokum 2010. Fjöldi árskúa var 23.417 sem er fækkun um 31 árskú frá árinu áður. Meðalnyt á liðnu ári var 5.436 kg sem er aukning um 94 kg frá síðasta ári. Fituthlutfall var 4,20% (-0,02%) og próteinhlutfall var 3,37 (+0,02%). Meðal bústærð var 38,5 árskýr 2011 en voru 38,6 árið áður. Sem fyrr eru búin stærst í Eyjafirði, 48,5 árskýr en minnst í Suður-Þingeyjarsýslu, 24,7 árskýr. Í töflunni hér að neðan má sjá yfirlit yfir 15 afurðahæstu búin á liðnu ári./BHB
| Bú |
Skýrsluhaldari |
Fjöldi árskúa |
Afurðir kg mjólkur |
Fita |
Prótein |
| Hraunkot, V-Skaft. |
Ólafur Helgason |
16,5 |
8.340 kg |
4,25% |
3,47% |
| Hóll, Skag. |
Jón og Hrefna |
34,6 |
7.986 kg |
4,15% |
3,50% |
| Kirkjulækur 2, Rang. |
Eggert Pálsson |
42,2 |
7.811 kg |
4,17% |
3,55% |
| Reykjahlíð, Árn. |
Sveinn Ingvarsson |
60,1 |
7.734 kg |
4,07% |
3,47% |
| Syðri-Bægisá, Eyjaf. |
Helgi Bjarni Steinsson |
33,9 |
7.687 kg |
4,59% |
3,42% |
| Ytri-Skógar, Rang. |
Félagsbúið |
21,2 |
7.669 kg |
3,91% |
3,37% |
| Egilsstaðakot, Árn. |
Elín og Einar |
33,6 |
7.517 kg |
4,38% |
3,36% |
| Helluvað 3, Rang. |
Helluvað ehf |
35,2 |
7.434 kg |
4,09% |
3,31% |
| Tröð, Snæf. |
Steinar Guðbrandsson |
25,4 |
7.383 kg |
4,51% |
3,39% |
| Hraunháls, Snæf. |
Guðlaug og Eyberg |
25,7 |
7.230 kg |
4,93% |
3,44% |
| Berustaðir 2, Rang. |
Egill Sigurðsson |
65,4 |
7.278 kg |
4,15% |
3,34% |
| Steinsstaðir 2, Eyjaf. |
Dreitill ehf |
45,8 |
7.135 kg |
4,20% |
3,47% |
| Skriðufell, N-Múl. |
Lífsval ehf |
59,6 |
7.113 kg |
3,91% |
3,26% |
| Dalbær 1, Árn. |
Arnfríður og Jón Viðar |
54,6 |
7.101 kg |
4,33% |
3,41% |
| Gunnbjarnarholt, Árn. |
Arnar Bjarni og Berglind |
103,0 |
7.083 kg |
4,10% |
3,44% |
Skýrsluhaldsvefur BÍ
Listi yfir afurðahæstu kýrnar
Helstu niðurstöður skýrsluhaldsins 1978-2011