Landssamband Kúabænda
Dansk
English
Landssamband kúabænda
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Sími: 569 2237
GSM: 896 1995
Fax: 569 2210
lk@naut.is
www.naut.is
Kýrhausinn
10 maí 2012 - 12:47
Ágætu lesendur. Nafni minn Sigurður Óli á Lambastöðum ber fram nokkrar spurningar til mín og framkv...
09 maí 2012 - 11:25
Hr. Baldur Helgi og Sigurður Lofts, Nú nýverið lækkaði mjólkurv...
29 apríl 2012 - 14:20
Gamla Baula, sem hét Mjólkurbú Hafnarfjarðar ef ég man rétt, var keypt a...
Þín skoðun
Hversu mikið af túnum ætlar þú að endurrækta í ár?
Fréttir LK
26. janúar 2012

Smákálfar fá oft of lítið af mótefnum með broddi

Í bandarískri rannsókn, sem tók til 827 smákálfa, kom í ljós að 30% þeirra fengu minna af mótefnum (IgG) með broddmjólkinni en mælt er með. Rannsóknin var gerð á broddmjólk 67 kúabúa frá 12 fylkjum og miðaði að því að kanna mótefnastöðu í broddmjólk. Ráðlagt magn erlendis eru 50 mg af IgG í hverjum millilíter broddmjólkur en ef mótefnamagni er undir þessu viðmiðið aukast hætturnar á því að kálfarnir veikist.

 

Í rannsóknin staðfesti að broddmjólk fyrsta kálfs kvígna inniheldur alla jafna afar lítið af mótefnum miðað við broddmjólk eldri kúa. Þannig var IgG innihaldið 42 mg/ml hjá fyrsta kálfs kvígum, 69 mg/ml hjá annars kálfs kúm og 96 mg/ml hjá kúm sem báru þriðja kálfi. Benda má á að auðvelt er að mæla mótefnainnihald broddmjólkur með þar til gerðum flotmæli eins og sjá má á myndinni sem fylgir þessari frétt/SS - Kvæg 1/2012.

 

 

Senda á Facebook